Við óttumst ekki að storka viðmiðum. Við notum arkitektúr, skipulag og ráðgjöf til þess að auka gæði og greina möguleika á nýjum tækifærum til að bæta lífsgæði fólks í hinu manngerða umhverfi.
Við höfum víðtæka þekkingu og reynslu. Megin starfssvið okkar er á sviði arkitektúr, innanhúss- og landslagshönnun, skipulagsgerð, ráðgjöf og verkefnastjórnun.
Fernando hefur meira en 18 ára reynslu af arkitektúr, innanhúss- og landslagshönnun og stjórnun ýmissa flókinna verkefna á Íslandi og víða um heim. Árið 2003, eftir útskrift frá Háskólanum í Minas Gerais (UFMG) í Belo Horizonte í heimalandi sínu Brasilíu, tók hann ákvörðun um hefja störf hjá PK arkitektum á Íslandi. Eftir níu ár hjá PK arkitektum starfaði Fernando í London með David Chipperfield að verkefnum í Bretlandi, Spáni og Bandaríkjunum, meðal annars í hönnun á tæknihverfi í Segovia, Spáni og Menil Collection í Houston. Tveimur árum síðar fór hann til Brasilíu, þar sem hann starfaði með hinum virta brasilíska arkitekt Isay Weinfeld að umfangsmiklum verkefnum í Suður-Ameríku og Evrópu, meðal annars í hönnun á einbýlis- og fjölbýlishúsnæði í Sao Paulo og lúxus byggingum í Mónakó. Árið 2013 sneri Fernando aftur til Íslands til að ganga aftur til liðs við PK arkitekta en nú sem meðeigandi undir nýju nafni, PKdM arkitektar.
Snemma árs 2020 stofnaði Fernando með Hans Tryggvasyni og Gísla Jónssyni arkitekta og ráðgjafafyrirtækið UNDRA.
Hans hefur áralanga reynslu í hönnun og stjórnun verkefna á vettvangi arkitektúrs, skipulags og borgarhönnunar.
Hans tók BA gráðu í arkitektúr við Listaháskóla Íslands og síðar tók hann MA gráðu í arkitektúr og borgarhönnun við AHO í Osló þar sem hann vann meðfram námi hjá arkitektinum Per Olaf Fjeld.
Eftir nám starfaði hann í þrjú ár hjá Reykjavíkurborg og vann þar að margvíslegum skipulags og borgarhönnunarverkefnum. Þar kom hann meðal annars að því að þróa frá upphafi og stýra þverfaglega borgarhönnunar verkefninu „Torg í Biðstöðu“ sem valið var verkefni ársins af The Reykjavík Grapevine Design Awards 2013.
Hans hefur starfað sjálfstætt ásamt því að hafa verið arkitekt og verkefnastjóri fjölda verkefna á sviði arkitektúrs, hönnunar og skipulags m.a. hjá ARKÍS og PK Arkitektar /PKdM, tveimur af stærstu arkitektastofum landsins.
Árið 2020 stofnaði Hans UNDRA ásamt Fernando de Mendonça og Gísla Jónssyni.
Gísli Jónsson
B.Sc, M.A.Sc, MBA
Meðeigandi/Framkvæmdastjóri
Burðarþols verkfræðingur/Verkefnisstjóri og Ráðgjafi
Gísli er með yfir 30 ára víðtæka reynslu á sviði verkfræði, áætlunargerðar og stjórnunar.
Eftir að hafa menntað sig á Íslandi og í Kanada fór hann að vinna hjá IFB Dr. Braschel GmbH í Stuttgart og Berlín sem burðarþolshönnuður og verkefnisstjóri frá 1992 - 1998. Meðal athyglisverðra verkefna sem Gísli kom að í Þýskalandi eru DIFA Victoria Areal í hjarta Berlínar, Haus der Bundespressekonferenz sem er fjölmiðlamiðstöð við Reichstag, byggingakjarninn Treptowers við Treptowerpark í Berlín og Molecule Man sem er skúlptur í ánni Spree við Treptowers (Jonathan Borofsky), Design Center Mercedes Benz í Sindelfingen og Goethe Garleria í Jena.
Á Íslandi gerðist Gísli síðan fagstjóri fyrir burðarvirkjasvið og áætlanir hjá VSÓ Ráðgjöf, frá 1998 - 2003, en tók síðan við starfi Hönnunar- og markaðsstjóra hjá Eykt fyrir Höfðatorg frá 2005 - 2009, eins stærsta byggingarverkefni í Reykjavík hingað til. Gísli gekk til liðs við PK arkitekta (síðar PKdM) nokkrum áður síðar, frá 2014 - 2019, sem framkvæmdastjóri með aðkomu að stjórnun, samningagerð og áætlanagerð verkefna.
Árið 2020 stofnaði Gísli UNDRA ásamt Fernando de Mendonça og Hans Tryggvasyni.
Við leggjum áherslu á góðar lausnir. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar og öðrum hagsmunaaðilum til að fá fram víðtæk sjónarmið sem er grunvöllur til að fá fram nýjar hugmyndir og vandaðar lausnir. Við teljum að góð hönnun gagnist viðskiptavinum okkar sem og samfélaginu í heild.
Við þrífumst á forvitni. Við leggjum mikið upp úr rannsóknum og vandaðri undirbúningsvinnu til þess að allar forsendur og möguleikar komi fram í upphafi verkefna.
Við leggjum mikið upp úr samstarfi. Í samvinnu við leiðandi sérfræðinga stefnum við á að skapa spennandi umhverfi og vandaðan arkitektúr, byggðan á sjálfbærum sjónarmiðum sem sprottin er af þörfum samfélagsins.
Hönnun
Arkitektúr
Innanhússhönnun
Landslagshönnun
Hugmynda og þróunarvinna
Áhersla á vandaðar lausnir, metnaðarfulla byggingarlist og mótun hins manngerða umhverfis þar sem umhverfisvæn sjónarmið eru ávallt höfð að leiðarljósi með því markmiði að skapa umhverfi og aðstæður sem auka lífsgæði fólks
Skipulag
Deiliskipulag
Þróunarvinna
Ráðgjöf
Með víðtækri þekkingu og reynslu í skipulagsmálum er markmið að hámarka tækifæri og möguleika á skipulagsstigi.
Ráðgjöf
Verkefnis- og hönnunarstjórn
Kostnaðaráætlanir og hagkvæmnisathuganir
Þróunarvinna og tillögugerð
Umsjón, ráðgjöf og rýni
Alhliða þjónusta til verkkaupa með markmið að efla hönnunarferla og áætlanagerð, auka upplýsingaflæði, draga úr óvissu og veita ráðgjöf og rýni á öllum stigum frá undirbúningi að fullunnu verki.
Vinsamlegast sendu tölvupóst á info@undra.is til að biðja um tilboð í verkefni, fá upplýsingar um ný og eldri verkefni eða einfaldlega til að segja halló.